JEPPAFERÐ Á VATNAJÖKLI

Frábært tækifæri að skoða jökulinn

Við hittumst í móttökunni okkar við Hótel Smyrlabjörg áður en við leggjum af stað.
Ferðin byrjar á því að aka upp að Skálafellsjökli, sem er skriðjökull frá Vatnajökli, á 16 km á fjallvegi með stórbrotna náttúru til beggja handa. Á leiðinni upp er stoppað til að njóta útsýnis og náttúrunnar.

Í um það bil 900 metra hæð byrjar svo stórkostlegt ferðalag inn á jökulinn, leiðin liggur að Grjótbotni sem er í um 1000 metra hæð og ef veðurguðirnir eru með okkur þá er útsýnið stórfenglegt til allra átta.

Á leiðinni er stoppað eins og þurfa þykir til að segja frá umhverfinu, njóta útsýnisins og taka myndir.

Glacier Journey eru einnig með sérsniðnar jeppaferðir. Tekið er við öllum bókunum og svarað spurningum í tölvupósti á netfangið info@glacierjourney.is

Fleiri upplýsingar

Hvenær

Opið er fyrir jeppaferðir á Vatnajökli frá maí – september.

Lengd ferðar

Um það bil 3 klukkustundir.

Hvað er innifalið?

Leiðsögn
Far frá og til móttöku við Hótel Smyrlabjörg

Upphafsstaður

Við hittumst í móttöku okkar sem er við Hótel Smyrlabjörg, 46 km vestan við Höfn og 34 km austan við Jökulsárlón.
GPS hnit 64.2173538,-15.7195644

Mæting í ferðir eru 30 mín fyrir brottför.

Hvernig á að bóka?

Opnað er fyrir ferðir eftir fyrirspurn og tekið er við öllum bókunum og svarað spurningum í tölvupósti á netfangið info@glacierjourney.is

BÓKA FERÐ

Loading...

Núna í boði með 10% afslætti.
Afsláttarkóðinn er “JEEP25” fyrir þessa ferð.

SUMAR STAÐSETING | BASE CAMP

Hótel Smyrlabjörg | Gps: 64.2173538, -15.7195644

SKILMÁLAR

  • Góður útivistarfatnaður og gönguskór er nauðsynlegur.
  • Nokkuð góðs líkamlegs þols er krafist fyrir flestar okkar ferðir.
  • Það er á ábyrgð viðskiptavinar að láta leiðsögumann okkar vita ef viðkomandi glímir við einhvern heilsubrest.
  • Það er 48 klst. afbókunarreglur; viðskiptavinir fá 90% endurgreiðslu ef þeir hætta við ferð 48+ klst fyrir brottför. Ef hætt er við með minna en 48klst fyrirvara þá er engin endurgreiðsla í boði.
  • Ef að ferðinni er aflýst af Glacier Journey af einhverri ástæðu, t.d. vegna veðurs þá fá viðskiptavinir fulla endurgreiðslu.
  • Glacier Journey tekur ekki ábyrgð á slysum/eignaspjöllum sem viðskiptavinir valda eða er hægt að rekja til óábyrgrar hegðunar.
  • Viðskiptavinir eru á eigin ábyrgð í öllum ferðum Glacier Journey.
  • Glacier Journey getur ekki ábyrgst það að það sé ekki annað fólk á sama tíma og sama svæði frá öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum.
  • Lágmarksfjöldi í ferð eru 2 fullorðnar manneskjur.